Heim English

Framadagar

Smelltu hér til að ná í stútfullan bækling um
Framadaga Háskólanna 2012!

Framadagar

Framadagar Háskólanna 2012 verða haldnir þann 1.febrúar í Sólinni í Háskólanum í Reykjavík á milli kl 11-16!

Framadagar er árlegur viðburður í háskólalífinu þar sem 35 helstu fyrirtæki landsins kynna starfsemi sína fyrir háskólanemendum. Á Framadögum verður hvert fyrirtæki með bás þar sem hægt er að fá upplýsingar um fyrirtækið og komast í kynni við starfsmenn þess. Fjöldi örfyrirlestra verða haldnir yfir daginn, kennarar úr HÍ og HR munu etja kappi í spurningakeppni og ýmislegt fleira skemmtilegt!

Markmið Framadaga er að háskólanemar geti kynnt sér fyrirtæki og aukið þar með líkur á sumarvinnu, framtíðarstarfi eða verkefnavinnu fyrir fyrirtæki. Sömuleiðis að fyrirtæki kynnist mögulegum starfsmönnum hvort sem er sumarstarfsmönnum eða framtíðarstarfsmönnum. Sannkallað stefnumót nemenda og fyrirtækja.

Strætó á vegum Framadaga Háskólanna mun ganga á milli HÍ og HR frá 10:45-16:15 og verður í boði fyrir alla og það er ekkert gjald á meðan á þessu stendur.

Fyrirtæki sem verða á Framadögum eru:

3X Technology Actavis Advania AIESEC Arionbanki
Betware Capacent CCP Efla Hagvangur
Háskóli Íslands Háskólinn í Reykjavík Icepharma IIIM Íslandsbanki
KILROY KPMG Landsbankinn Landsnet Landsvirkjun
LS Retail Mannvit Marel Matís Nova
Nýsköpunarmistöðin ORF líftækni Orkuveitan PwC Reiknistofa Bankanna
Ríkið Verkís World Class Ölgerðin Össur
Bandalag háskólamanna

Dagskrá Framadaga

Framadagar

Finndu okkur á Facebook undir Framadagar Háskólanna