Heim English

Samstarfsaðilar

Án samstarfsaðila gætu stúdentasamtök eins og AIESEC ekki boðið meðlimum sínum sömu tækifæri og við gerum núna og því höfum við frábær fyrirtæki sem styðja við bakið á okkur, bæði hvað varðar faglega þjónustu og styrki.

Eins og sjá má neðst á vefsvæðinu okkar þá eru helstu styrktaraðilar okkar: Evrópa unga fólksins, Pixel prentþjónustan og JCI á Íslandi.

Evrópa unga fólksins

"Evrópa unga fólksins er íslenska heitið á Ungmennaáætlun Evrópusambandsins, Youth in Action, og er samstarfsverkefni ESB, mennta− og menningarmálaráðuneytisins og UMFÍ. Áætlunin veitir styrki fyrir ungt fólk á aldrinum 13−30 ára. Á hverju ári veitir Evrópa unga fólksins á Íslandi um 1.000.000€ í styrki til góðra verkefna sem skipulögð eru af ungu fólki og/eða fyrir ungt fólk." Sjá nánar á vefsíðu Evrópu unga fólksins.

Pixel Prentþjónusta

Pixel er alhliða metnaðarfull prentþjónusta sem býður upp á persónulega og góða þjónustu og hröð og öguð vinnubrögð. Starfsmenn Pixel búa yfir áratuga langri reynslu í prentiðnaði: ráðgjöf, umsjón með prentverkum, skönnun, umbrot, hönnun, tilboðsgerð. Skilningur á þörfum viðskiptavina hefur alltaf verið í öndvegi hjá Pixel. " Sjá nánar á heimasíðu Pixel.

Junior Chamber International

JCI er "Alþjóðlegur félagsskapur ungs fólk á aldrinum 18−40 ára sem vil sjá jákvæðar breytingar hjá sjálfum sér og í umhverfi sínu. Námskeiðshald, þjálfun og félagsstarf eru nokkur þeirra atriða sem starfið byggir á. Þetta eru mannbætandi en umfram allt skemmtileg félagssamtök." Sjá nánar á vefsíðu JCI á Íslandi.

JCI á Íslandi hefur verið okkur til taks fyrir ráðstefnur AIESEC innanlands og aðrar þjálfanir innan samtakanna. Innan JCI er fullt af reynsluboltum sem hafa deilt reynslu sinni og þekkingu til þess að hjálpa okkur að þroska hæfileika okkar. Starfsemi JCI er svipuð AIESEC, að starfaskiptaverkefninu undanskildu, þar sem við skipuleggjum okkar verkefni upp úr hugmyndum okkar eigin meðlima og öðlumst því reynslu með því að framkvæma hlutina. Einnig má orða það eins og mannauðsstjórinn okkar (skólaárið 2009 − 2010) hún Simona Berbec kom svo vel að orði á einum kynningarfundinum: "JCI is like AIESEC for grown ups".

Ölgerðin

Ölgerðin er eitt stærsta fyrirtækið á sínu sviði. Ölgerðin framleiðir, flytur inn, dreifir og selur matvæli og sérvöru af ýmsum toga. Áhersla er lögð á að vörur fyrirtækisins séu fyrsta flokks og að viðskiptavinir þess geti gengið að hágæða þjónustu vísri. Aðeins vörur sem eiga þess kost að vera fremstar í sínum flokki eru settar á markað og hverjum birgja sinnt sem hann væri sá eini. Stöðugt er leitað nýrra leiða til að efla starfsemina og ná fram meiri framleiðni með því að gera hlutina betur og fyrr en aðrir.