Hvað hefur AIESEC fram á að bjóða fyrir þitt fyrirtæki?
Starfaskiptasamstarf
Kostir samstarfsins
Með því að taka upp starfaskiptasamstarf við AIESEC geta fyrirtæki náð mörgum markmiðum samtímis. Sem stærstu alþjóðlegu stúdentasamtök í heimi með yfir 60 ára reynslu getur AIESEC veitt úrvals þjónustu á sviði mannauðsmála á mjög viðráðanlegu verði. Helstu kostir eru
- Mikið úrval: Aðgangur að þúsundum ungs fólks um allan heim með fjölbreyttan bakgrunn og ólíka menntun
- Sveigjaleiki: Hægt er að fá til sín nema á hvaða tíma árs sem er og getur samningstíminn verið frá 6 vikum upp í allt að 18 mánuði
- Erlend tenging: Með því að fá til sín erlendan nema er hægt að fá aðgang að ómetanlegri innsýn í markað heimalands viðkomandi
- Mjög ódýrt: AIESEC nemar eru að leita að reynslu og spennandi upplifun og eru því tilbúnir til að vinna gegn hóflegri greiðslu
Hvernig þjónustan virkar
AIESEC veitir yfirgripsmikla þjónustu við fyrirtæki sem taka þátt í starfaskiptasamstarfi. Þjónustan gengur fyrir sig með eftirfarandi hætti:
- Við auglýsum stöðuna á innra neti AIESEC og sjáum til þess að hún fái viðunandi athygli
- Þegar umsóknir byrja að streyma inn sigtum við þær út sem ekki uppfylla tilgerðar kröfur og komum einungis þeim áfram sem þykja ásættanlegar
- Ef neminn kemur frá landi sem kallar á landvistar- og atvinnuleyfi sjáum við um umsókn á þeim
- Fyrir komuna til landsins aðstoðum við nemann við undirbúning og hjálpum til við að finna húsnæði
- Eftir komuna til landsins tökum við á móti nemanum og hjálpum honum að aðlagast
- Reglulega á meðan samningstímabilinu stendur framkvæmum við ánægjumat, bæði meðla nemans og fyrirtækisins, og ef eitthvað má bæta göngum við í það
Hverju má búast við af AIESEC nema
Meðlimir í AIESEC eru ungt háskólafólk sem hefur tekið þá ákvörðun að láta ekki staðar numið við formlega menntun heldur samhliða námi tryggja sér reynslu sem mun veita þeim forskot á vinnumarkaðnum. Algengir eiginleikar þeirra eru
- Metnaður til að skara framúr
- Vel þróaðir ?soft skills?
- Opið og sveigjanlegt hugarfar
Skuldbinding fyrirtækisins
Á móti þeirri þjónustu sem AIESEC veitir eru nokkrar skuldbindingar sem fyrirtækið verður að gangast við svo samstarfið getur orðið að veruleika. Þær mikilvægustu eru
- Að útvega starf sem er krefjandi og veiti nemanum verðmæta reynslu
- Að hjálpa við að búa til starfslýsingu
- Að eiga símaviðtal við þá umsækjendur sem taldir eru hæfastir
- Að borga laun sem ekki eru lægri en lágmarkslaun á Íslandi
- 150.000 kr eru greiddar við ráðningu og 50.000 kr til viðbótar þegar neminn hefur störf


