Heim English

Algengar spurningar - FAQ

Hvað er AIESEC?

AIESEC er alþjóðlegur vettvangur fyrir ungt fólk til að þróa og þjálfa leiðtogahæfileika sína til að hafa jákvæð áhrif á samfélagið. Samtökin eru stærstu alþjóðlegu stúdentareknu samtök í heiminum og hafa þau verið starfandi í rúm 60 ár. Auk þess sjá samtökin um að veita stúdentum starfsþjálfun erlendis. Hægt er að kynna sér AIESEC meira á Um AIESEC.

Fyrir hvað stendur AIESEC?

Þegar AIESEC var stofnað var það í upphafi hugsað fyrir ungt fólk sem stunduðu nám í hagfræði og viðskiptafræði. AIESEC stendur fyrir Association Internationale d'Etudiants en Sciences Economiques et Commerciales eða alþjóðleg samtök stúdenta í hagfræði og viðskiptafræði. Í dag geta hvaða háskólanemendur sem eru orðið meðlimir AIESEC hvort sem þeir stunda nám í félagsfræði, tungumálum, raunvísindum, tæknigreinum, viðskiptafræði eða hagfræði.

Upphaf AIESEC?

AIESEC var formlega stofnað árið 1948 í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar. Þær þjóðir sem áttu aðild að stofnun AIESEC eru eftirfarandi: Finnland, Svíþjóð, Noregur, Danmörk, Belgía, Holland og Frakkland. Samtökin voru þó til fyrir þennan tíma þar sem starfaskipti þeirra voru hafin en samtökin voru ekki orðin formlega stofnuð. Tilgangur með starfaskiptum var að þróa vinatengsl milli þeirra þjóða sem störfuðu innan samtakanna með því að efla skilning einstaklinga, sem fóru erlendis í starfaskipti, á erlendum þjóðum.

Í hvaða löndum er AIESEC starfandi?

AIESEC er starfandi í yfir 107 löndum. Meðal þeirra landa þar sem samtökin eru starfandi, eru: Ástralía, Austurríki, Botswana, Brasilía, Kanada, Danmörk, Dóminíska Lýðveldið, Egyptaland, Eþíópía, Frakkland, Þýskaland, Ghana, Grikkland, Japan, Maurititius, Kína, Nýja-Sjáland, Perú, Rúmenía, Rwanda, Suður-Afríka, Sri-Lanka, Svíþjóð, Bretland, Bandaríkin og auðvitað Ísland.

Afhverju að vera leiðtogi í AIESEC?

Þú færð ákveðna reynslu sem þú færð ekki í skólanum. Í fyrsta lagi eflirðu leiðtogahæfileika þína og lærir með því að framkvæma í staðinn fyrir að lesa eingöngu skólabækur. Þú færð aukin tækifæri til að sækja ráðstefnur og þjálfa á þeim. Tengslanetið þitt stækkar bæði erlendis og innanlands. Auk þess eflirðu tækifæri þín í framtíðinni þar sem leiðtogahæfni er mikils metin.