Heim English

Leiðtogatækifæri í AIESEC

Tilgangur AIESEC er að gefa stúdentum möguleikann á að öðlast nýja hæfileika með því að takast á við raunveruleg, krefjandi verkefni. Fremst í farabroddi fer framkvæmdastjórn AIESEC í Reykjavík þar sem meðlimir fá tækifæri til að kynnast hvernig það er að reka fyrirtæki því þegar öllu er á botni hvolft er AIESEC mun líkara fyrirtæki en nemendafélagi. Framkvæmdastjórnin mun þurfa að standa í mannauðsstjórnun, vöruþróun og gerð fjárhagsáætlana svo eitthvað sé nefnt.

Forseti framkvæmdastjórnar

Sem leiðtogi framkvæmdastjórnarinnar þarf forsetinn (e. Local Committee President) að halda utanum teymið og sjá til þess að hópurinn sé á réttri leið. Dæmigerð verkefni forseta er að stýra stjórnarfundum, eiga frumkvæði að skipulagsvinnu og ná sem mestu út úr framkvæmdastjórninni, hvort sem það sé með hvatningu eða stuðningi.

Framkvæmdastjóri fjármálasviðs

AIESEC er rekið eins og fyrirtæki og því er grundvallar atriði að vel sé haldið utanum fjármálin. Framkvæmdastjóri fjármálasviðs (e. Vice President of Finance) ber ábyrgð á því að búin sé til góð fjárhagsáætlun, bæði fyrir samtökin í heild sinni og fyrir einstök verkefni, og fylgir henni eftir með reikningshaldi og aðhaldi ef önnur svið freistast til að fara óvarlega með fjármagn.

Framkvæmdastjóri sölusviðs

Eins og öll fyrirtæki þá hefur AIESEC vörur til að selja, þó oft séu þær í formi reynslu frekar en einhverju áþreifanlegu. Sölusviðið hefur það hlutverk að selja fyrirtækjum tækifærið að taka að sér erlendan nema. Að gefa nemendum tækifæri til að vinna erlendis er kjarni starfsemi AIESEC og því er starf framkvæmdatjóra sölusvið (e. Vice President of Incoming Exchange) einkar mikilvægt.

Framkvæmdastjóri starfaskiptasviðs

Á meðan sölusviðið semur við fyrirtæki á Íslandi um að taka á móti nema erlendis frá þá vinnur starfaskiptasviðið að því að finna nemendur á Íslandi sem vilja nýta sér sama tækifæri erlendis. Framkvæmdastjóri starfaskiptasviðs (e. Vice President of Outgoing Exchange) vinnur að því að búa til ómetanlega reynslu fyrir íslenska háskólanemendur og hefur því gífurlega mikil áhrif á ímynd samtakana í samfélaginu.

Framkvæmdastjóri mannauðssviðs

Það segir sig sjálft að án meðlima þá mega engin samtök sín mikils. Mannauðssviðið ber ábyrgð á nýliðun í samtökunum og að búa meðlimum umhverfi þar sem þeir fá sín best notið. Framkvæmdastóri mannauðsmála (e. Vice President of Talent Management) vinnur mjög náið með öðrum meðlimum framkvæmdastjórnarinnar því öll svið hafa þörf fyrir að fá sem mest út úr meðlimum sínum.

Framkvæmdastjóri markaðssviðs

Markaðssviðið er stuðningssvið allra annara sviða, sér um markaðssmál AIESEC svo sem að búa til kynningarefni, sjá um heimasíðu, skrifa greinar í blöð og fleira. Markaðssviðið passar vel upp á að AIESEC lýti vel út á við. Það er mjög mikilvægt fyrir framkvæmdastjóra markaðssviðsins að geta unnið með hinum úr framkvæmdastjórnni og geta skilið að mikilvæga hluti frá þeim sem eru ekki eins mikilvægir til að stuðla að sem mestu framförum allra sviða.

Framkvæmdastjóri Framadaga

Framadagar er reglulegur viðburður innan AIESEC en þetta er einn af stærri viðburðum háskólasamfélagsins á ári hverju. Framkvæmdastjóri Framadaga er höfuð framadagateymisins. Í upphafi haustannar ræður hann til sín 6-12 einstaklinga til að skipa framadagateymið. Saman skipuleggja þau Framadaga og vinna að undirbúningi í um það bil fjóra til fimm mánuði til að láta framadaga heppnast eins og til skildi. Hægt er að lesa meira um framadaga hér.