Heim English

Velkomin til AIESEC á Íslandi

AIESEC á Íslandi er hluti af AIESEC heimssamtökunum sem eru stæstu stúdenta reknu samtök í heimi. Samtökin hafa verið starfandi í meira en 60 ár og í dag eru meðlimir yfir 50.000. Megin markmið okkar er að gefa stúdentum tækifæri til að þróa með sér leiðtogahæfileika til að breyta heiminum til hins betra. Nánari upplýsingar um samtökin getið þið fundið hér.

Framkvæmdastjórn

Á haustönn 2010 bauð AIESEC uppá krefjandi stöður sem stúdentar gátu sótt um. Helst ber að nefna framkvæmdastjórn AIESEC í Reykjavík. AIESEC á Íslandi er í mikilli uppbyggingu og því hafa stúdentar einstakt tækifæri til að láta reyna á hæfileika sína og taka þátt í því frumkvöðla starfi að byggja upp samtökin á Íslandi. Nánari upplýsingar getið þið fundið hér.

Framadagar

Eitt umfangsmesta og árangursríkasta árlega verkefni AIESEC á Íslandi eru Framadagar. Með því að taka þátt í skipulagshóp Framadaga fá stúdentar mikilvægt tækifæri til að undirbúa og framkvæma meiriháttar viðburð sem felur í sér þátttöku tuga fyrirtækja og þúsunda stúdenta. Nánari upplýsingar getið þið fundið hér.

Umsóknir fyrir bæði tækifæri er hægt að nálgast hér en einnig er hægt að hafa samband við landsstjórn AIESEC í gegnum tölvupóst á aiesec@aiesec.is, í síma 552-9932 eða einfalldlega koma við á skrifstofunni okkar að Hjarðarhaga 2-6.

Mynd af hluta hópsins á DRIVE 2009